Náðu lengra

+VIÐBURÐIR

Viðburðir …


Discover Truenorth sérhæfir sig í árshátíðum, ráðstefnum, starfsdögum og hinum ýmsu hátíðarhöldum og hefur framkvæmt fjölda viðburða fyrir Íslensk og erlend fyrirtæki, vörumerki og einstaklinga. Með áratuga reynslu af viðburða- og verkefna stjórnun er teymi Discover Truenorth fremst í flokki og sér um að þinn viðburður sé framkvæmdur að þínum óskum og skilji eftir sig ógleymanlegar minningar.

Viðskiptavinir segja


Fólkið hjá Discover Truenorth fær mín bestu meðmæli. Hef unnið með þeim nokkrum sinnum og þau sinna verkefnunum alltaf af fullkominni fagmennsku en eru um leið hlý og skemmtileg. Ég get alltaf treyst því að verkefnin séu kláruð og að hugsað sé fyrir öllum smáatriðum.
— Nanna k. Tryggvadóttir - Aðstoðarmaður Bankastjóra LÍ

We have utilised Discover Truenorth services for Hvíta Húsið and for many of our clients. It is safe to say, that doing business with DTN ensures quality and excellent services in both catering and events. DTN’s crew are major league people.
— Kristinn R. Árnason General Manager for Hvíta Húsið

DTN býr yfir víðtækri þekkingu og reynslu þegar kemur að skipulagningu viðburða og hafa þau sýnt mikið frumkvæði þegar kemur að því að finna hugmyndir eða lausnir þegar á þarf að halda. Samstarfið hefur verið einstaklega gott en einnig skemmtilegt sem er mikilvægur partur í því ná árangri.
— Jón Cleon Sigurðsson

Nokkur dæmi


Starfsmannahátíðir

Frá árinu 2003 höfum við skipulagt og framkvæmt metnaðarfyllstu árshátíðir og starfsmannahátíðir fyrir íslensk og alþjóðleg fyrirtæki – hátíðir þar sem ekkert er sjálfgefið og hvert smáatriði skiptir máli. Við sköpum kvöld þar sem andrúmsloft, staðsetning og upplifun verða að einni, ógleymanlegri heild.


Ráðstefnur

Frá stofnun höfum við séð um stærstu og viðamestu ráðstefnur landsins – þar á meðal Arctic Circle Conference og EVE Fanfest til fjölda ára. Með öfluga framkvæmd, tæknivædda umgjörð og smáatriðin á hreinu tryggjum við ráðstefnur sem skila árangri og skilja eftir sig spor.


Fögnuðir

Við höfum skipulagt einhverja glæsilegustu einkaviðburði landsins – allt frá stórafmælum og merkisafrekum til stórtækra einkasamkoma þar sem ekkert er til sparað. Hver fagnaður er hannaður af kostgæfni og hugmyndaauðgi, með ramma sem endurspeglar persónu gestgjafans og kraft upplifunarinnar.


Brúðkaup

Við skipuleggjum einstök brúðkaup fyrir pör sem vilja gera þennan stóra dag að einlægri, ógleymanlegri og alvöru upplifun – þar sem fagmennska, fagurfræði og gæði eru í forgangi. Þetta eru brúðkaup þar sem ekkert er tilviljun og hvert smáatriði ber virðingu fyrir því sem verið er að fagna.


Sérferðir / Hvataferðir

Þetta eru ekki ferðir með prógrammi – heldur upplifanir sem tengja fólk, hreyfa við því og breyta hópnum til framtíðar. Við hönnum hvataferðir þar sem hver einasta stund er hugsuð til að styrkja liðsheild, hvetja til nýrrar sýnar og skapa rými þar sem tengsl og traust fá að vaxa.